Frjálsíþrótta og leikjanámskeið FH 2012
Í sumar verða haldin frjálsíþrótta- og leikjanámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH.
Námskeiðin verða haldin á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika.
Námskeiðin eru fyrir 6-10 ára (fædd 2002-2006).
Tími: Mánudaga-Föstudaga kl. 13:00-16:00.
Boðið er upp á gæslu kl. 16:00-17:00 fyrir þau sem vilja.
Á námskeiðunum eru hinar ólíku greinar frjálsíþrótta teknar fyrir, svo sem stangarstökk, langstökk, hástökk, kúluvarp, boltakast og spretthlaup ásamt því að við förum í leiki tengda íþróttum. Börnin skulu vera klædd eftir veðri og hafa með sér hollt nesti.
Í lok hvers námskeiðs verður pizzuveisla og allir fá viðurkenningarskjal.
Stefnan er tekin á þrjú frjálsíþróttamót fyrir þennan aldurshóp:
· 17. júní mót ÍTH í Hafnarfirði.
· Stórmót Gogga galvaska í Mosfellsbæ dagana 22.-24 júní.
· Gaflarann dagana 28. og 29. júlí (fyrir þau sem eru 10 ára)
Börnin eiga að hafa með sér nesti og lögð er áhersla á að þau komi með hollan mat svo sem ávexti,grænmeti,mjólkurmat(skyr) og holla drykki.
Námskeiðin verða haldin:Skrá hér
· 11.-22. júni
· 25.júní - 6. júlí
· 7. - 17. ágúst
Námskeiðsgjald er 6.000 kr. Systkinaafsláttur fyrsta barn greiðir fullt gjald, önnur greiða 4.000 kr.
Hægt er að skrá börnin á staðnum í upphafi hvers námskeiðs.
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru á www.fhfrjalsar.com, www.fh.is og hjá:
Maríu Kristínu Gröndal Farsími 6977990, netfang: mariakristing@gmail.com
og Sveinbjörgu Zophoníasdóttir farsími 6631509 , netfang: sveinazoph@gmail.com