Sveinbjörg Norðurlandameistari 22 ára og yngri í Sjöþraut

Posted by Vefstjóri on Monday, June 10, 2013 In : Frjálsar 
Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr FH varð nú um helgina Norðurlandameistari í Sjöþraut 22 ára og yngri. Keppnin fór fram í Huddinge í Svíþjóð. Sveinbjörg hlaut 5212 stig og náði lágmarki á EM um leið, glæsilegt það. Hermann Þór Haraldsson úr FH var að taka þátt í sinni fyrstu tugþraut. Hann keppti í flokki 22 ára og yngri og hlaut 5933 stig og endaði í 5 sæti. Flottir fulltrúar þar á ferð.
Continue reading...
 

Næstu mót

Posted by Vefstjóri on Tuesday, June 4, 2013 In : Frjálsar 
Við viljum minna ykkur á að skoða mótaskrána. Í næstu viku verða tvö mót haldin, það eru Vormót Fjölnis og Vormót ÍR. Uppýsingar um vormót Fjölnis má finna hér. Vormót ÍR er hluti af mótaröð FRÍ og upplýsingar um tímaseðil má finna hér og upplýsingar um skráningu hér.
Continue reading...
 

Mótaskrá

Posted by Vefstjóri on Monday, May 20, 2013 In : Frjálsar 
Nú eru mótin farin að byrja. Við hvetjum ykkur til að skoða þau hér undir flipanum Mótaskrá. Einnig er hægt að skoða þau á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins með því að smella hér.
Continue reading...
 

Frjálsíþrótta og leikjanámskeið FH

Posted by Vefstjóri on Monday, May 13, 2013 In : Frjálsar 
Frjálsíþrótta- og leikjanámskeið sumar 2013. 
Í sumar verða haldin frjálsíþrótta- og leikjanámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH. 
Námskeiðin verða haldin á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika. 
Námskeiðin eru fyrir 6-10 ára (fædd 2003-2007) Tími: Mánudaga-Föstudaga kl. 13:00-16:00. 
Boðið er upp á gæslu kl. 16:00-17:00 fyrir þá sem vilja. Á námskeiðunum eru hinar ólíku greinar frjálsíþrótta teknar fyrir, svo sem stangarstökk, langstökk, hást...

Continue reading...
 

Sigursælir 13 ára FH-ingar

Posted by Vefstjóri on Monday, May 13, 2013 In : Frjálsar 
Víðavangshlaup Íslands var haldið laugardaginn 11. maí sl. við gömlu þvottalaugarnar í Laugardal í Reykjavík í umsjón frjálsíþróttadeildar Ármanns. 13 ára FH-ingar áttu góðan dag og voru sigursæl á mótinu. Í keppnisflokki 13 ára stráka sigraði Hinrik Snær Steinsson og hljóp hann 1 km á tímanum 3:50,9 mín, í 3. sæti varð Nökkvi Már Nökkvason á tímanum 4:00,2 mín. Í sveitakeppni sigruðu 13 ára FH strákar, sveitina skipuðu Hinrik Snær, Nökkvi Má...
Continue reading...