Frábær árangur FH-inga á Reykjavík International
Posted by Vefstjóri on Sunday, January 22, 2012
Under: Frjálsar
FH-ingar náðu frábærum árangri á Reykjavík International Games sem fram fór í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík í gær og lofar árangurinn góðu fyrir komandi tímabil. Mótið var stórskemmtilegt og settu FH-ingar skemmtilegan svip á mótið. Á mótinu voru mörg persónuleg með slegin en auk þess voru sett átta mótsmet og tvö Íslandsmet, eitt í flokki fullorðinna og eitt í flokki 12 ára stúlkna.
Árangur FH-inga í einstökum greinum:
Í langstökki karla sigraði Kristinn Torfason með stökk uppá 7,68m sem er nýtt mótsmet. Kristinn átti frábæra stökkseríu og háði harða keppni við norðulandamethafann Morten Jensen frá Danmörku. Greinilegt að Kiddi er í mjög góðu formi og verður spennandi að fylgjast með honum.
Í 60 m hlaupi kvenna voru 3 keppendur frá FH. Andrea Torfadóttir átti mjög gott hlaup og náði á tímanum 8,20s (7-8 sæti) em er persónulegt met. Steinunn Arna Atladóttir hljóp á 8,26s (9 sæti) og Melkorka Rán Hafliðadóttir á 8,33s (10 sæti) sem einnig er persónulegt met.
Í kúluvarpi náði Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir í 4 sæti með 12,48m og Sveinbjörg Zopaníasdóttir í 5 sæti með 12,07m.
Í 60m hlaupi karla sigraði Óli Tómas Freysson, FH á tímanum 6,99s og Sveinn Elías Elíasson FH náði 2 sæti á tímanum 7,06s. Frábært hlaup hjá Óla og Sveini.
Haraldur Tómas Hallgrímsson hljóp 3000m á tímanum 9:23,59 (3 sæti).
Í 400m hlaupi karla átti Trausti Stefánsson frábært hlaup upp á 48,45s (2 sæti) sem er persónulegt met. Trausti er greinilega í feiknaformi. Guðmundur Heiðar Guðmundsson átti einnig mjög gott hlaup upp á 51,70s (6 sæti).
Sveinbjörg Zophaníasdóttir stóð í ströngu á mótinu og keppti í þremur greinum. Í langstökki átti hún stökk upp á 5,88m og sýndi góða takta. Í 60m grindahlaupi hljóp hún tímanum 9,51s og varpaði kúlunni 12,07m eins og áður sagði. Sveinbjörg er greinilega í góðu formi og er frábært að hafa fengið þessa mögnuðu íþróttakonu til liðs við FH.
Í 400m hlaupi kvenna hljóp Stefanía Hákonardóttir á 58,33s sem lofar mjög góðu. Álfrún Ýr Björnsdótr varð í 3 sæti á 63,92s.
Þórdís Eva Steinsdóttir hljóp 800m í flokki 13-14 ára og setti nýtt Íslandsmet í flokki 12 ára stúlkna með stórgóðu hlaupi upp á 2:25,37 og sigraði með miklum yfirburðum eldri stelpur.
Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir hljóp 800m á 2:28,45 og bætti sinn besta tíma innanhúss. Í hlaupinu var sett nýtt glæsilegt íslandsmet í kvennaflokki þegar Aníta Hinriksdóttir ÍR hljóp á tímanum 2:05,96.
Greinilegt er að FH-ingar koma vel undan vetri þrátt fyrir að búa við takmarkaða æfingaaðstöðu miðað við keppinautana í Reykjavíkurfélögunum. Frjálsíþróttahús í Kaplakrika er því beðið með óþreyju og þarf ekki að spyrja að því hvaða jákvæðu áhrif slíkt hús myndi hafa á frjálsíþróttir í Hafnarfirði!
In : Frjálsar






