FH varð Bikarmeistari innanhúss. Karlalið FH vann stigakeppnina nokkuð örugglega og unnu 8 titla af 12 mögulegum. Konurnar stóðu sig einnig vel og urðu í 3 sæti, aðeins 2 stigum á eftir liði norðurlands. Í heildina vann FH með 107 stigum en lið ÍR varð í öðru sæti með 102,5 stig og vann einnig kvennakeppnina. Trausti Stefánsson setti glæsilegt Íslandsmet í 400m og hljóp á 48.05sek sem er góð bæting hjá honum. Öll úrslit af mótinu má skoða hér. Við viljum óska FH-ingum til hamingju með glæsilegan árangur. Áfram FH!!