Showing category "Frjálsar" (Show all posts)

2 Coca Cola mót FH

Posted by Vefstjóri on Wednesday, May 23, 2012, In : Frjálsar 
Hefst:30.05.12
Staður:Kaplakriki
Tímaseðill:17.30
Keppnisgreinar:
-Sleggjukast Kvenna
-Kringlukast Stúlkna 600gr
-Spjótkast Kvenna

Ábyrðarmaður er Eggert Bogason
Yfirdómari: Sigurður Haraldsson 


Continue reading ...
 

1 Coca Cola mót FH

Posted by Vefstjóri on Wednesday, May 23, 2012, In : Frjálsar 
Hefst:25.05.12
Staður:Kaplakriki
Tímaseðill:17.30
Keppnisgreinar:
-Sleggjukast Kvenna
-Kringlukast Stúlkna 600gr
-Spjótkast Kvenna

Ábyrðarmaður er Eggert Bogason
Yfirdómari: Sigurður Haraldsson

 

Continue reading ...
 

JJ mót Ármanns

Posted by Vefstjóri on Monday, May 21, 2012, In : Frjálsar 
JJ mót Ármanns verður haldið næskomandi fimmtudag nánar hér
Continue reading ...
 

Flottur árangur í Skólaþríþraut FRÍ

Posted by Vefstjóri on Saturday, May 5, 2012, In : Frjálsar 
Úrslitakeppni í Skólaþríþraut FRÍ 2012 fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag. Alls voru keppendur 73 og áttum við FH-ingar góðan hóp keppenda sem allir stóðu sig frábærlega en þau eru: Guðbjörg Bjarkadóttir, Ingibjörg Patricia, Örvar, Guðný Sig, Gréta Örk, Hrafnhildur, Þórdís Eva, Daníel Ingi og Hinrik Snær. Með hópnum var Elísabet þjálfari. FH átti 3 sigurvegara samanlagt: Guðbjörg (13. ára stúlkur), Daníel Ingi (12. ára piltar...
Continue reading ...
 

Víðavangshlaup Hafnarfjarðar úrslit

Posted by Vefstjóri on Thursday, April 19, 2012, In : Frjálsar 
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram á sumardaginn fyrsta ,19 apríl á Víðistaðatúni. Keppendur voru rúmlega fimmhundruð og fimmtíu í 14 flokkum. Emil Stefánsson var fyrstur í mark í flokknum 15-20 ára karla og Margrét Rósa Halfdánardóttir fyrst í 15-20 ára kvenna. Veðrið var gott þó ekki hafi verið heitt. Frjálsíþróttadeild FH sá um framkvæmd hlaupsins. Verðlaun voru gefin af Hafnarfjarðarbæ. Allir keppendur fengu verðlaunapening og fyrstur í mark í ...
Continue reading ...
 

Óðinn með 20.22m og Ólympíulágmark

Posted by Vefstjóri on Saturday, March 31, 2012, In : Frjálsar 
Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH var að ná Olympíulágmarki á Coca Cola móti FH innanhús  í Kaplakrika. Óðinn Björn varpaði kúlunni 20,22 m og bætti sinn besta árangur um tæpa 40 sentimetra. Mikil stemming var í Kaplakrika og var hann vel studdur af fjölmennum hópi áhorfenda. Glæsilegur árangur og er hann 3. besti kúluvarpari Íslands innanhúss. Fór Óðinn upp fyrir frænda sinn Óskar Jakobsson með þessu kasti og er að nálgast verulega bæði Pétur Guðmundss...
Continue reading ...
 

FH Íslandsmeistari félagsliða í 11-14 ára flokki

Posted by Vefstjóri on Sunday, February 26, 2012, In : Frjálsar 
FH-ingar urðu í dag Íslandsmeistarar félagsliða í 11-14 ára flokki. Fjölmargir Íslandsmeistaratitlar og góðar bætingar litu dagsins ljós og unnu krakkarnir 3 aldursflokka og heildarstigakeppnina með 432 stig, lið ÍR varð í öðru sæti með 422 stig og HSK/Selfoss í þriðja sæti með 336,8 stig. Við viljum óska krökkunum til hamingju með fábæra helgi og er þetta merki um hversu gott starf er unnið í félaginu. Áfram FH!! 
Continue reading ...
 

FH Bikarmeistarar innanhúss og Íslandsmet í 400m

Posted by on Saturday, February 18, 2012, In : Frjálsar 
FH varð Bikarmeistari innanhúss. Karlalið FH vann stigakeppnina nokkuð örugglega og unnu 8 titla af 12 mögulegum. Konurnar stóðu sig einnig vel og urðu í 3 sæti, aðeins 2 stigum á eftir liði norðurlands. Í heildina vann FH með 107 stigum en lið ÍR varð í öðru sæti með 102,5 stig og vann einnig kvennakeppnina. Trausti Stefánsson setti glæsilegt Íslandsmet í 400m og hljóp á 48.05sek sem er góð bæting hjá honum. Öll úrslit af mótinu má skoða hér. Við vil...
Continue reading ...
 

Flottur árangur á MÍ 15-22 ára

Posted by Vefstjóri on Monday, January 30, 2012, In : Frjálsar 
Meistaramót 15-22 ára fór fram síðast liðna helgi. Krakkarnir stóðu sig mjög vel, margir titlar og margar persónulegar bætingar. Hér er hægt að skoða úrslit af mótinu og einnig er hægt að skoða flottar myndir sem Gunnlaugur Júlíusson tók af mótinu hér
Continue reading ...
 

Íslandsmet í 400m hlaupi

Posted by Vefstjóri on Sunday, January 29, 2012, In : Frjálsar 
Trausti Stefánsson úr FH setti glæsilegt íslandsmet í 400m hlaupi á Stórmóti ÍR í dag. Trausti hljóp á 48.23 sek, en annar í hlaupinu  var Ívar Jasonarson ÍR á 48.53 sek sem einnig er bæting. FH-ingar áttu fjölmarga þátttakendur á mótinu og stóðu allir sig mjög vel og margir í bætingarham eða við sinn besta árangur og megum við vera stolt af okkar fólki.  Hér er hægt að skoða öll úrslit af mótinu.
Continue reading ...
 

Frábær árangur FH-inga á Reykjavík International

Posted by Vefstjóri on Sunday, January 22, 2012, In : Frjálsar 
FH-ingar náðu frábærum árangri á Reykjavík International Games sem fram fór í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík í gær og lofar árangurinn góðu fyrir komandi tímabil. Mótið var stórskemmtilegt og settu FH-ingar skemmtilegan svip á mótið. Á mótinu voru mörg persónuleg með slegin en auk þess voru sett átta mótsmet og tvö Íslandsmet, eitt í flokki fullorðinna og eitt í flokki 12 ára stúlkna. 

Árangur FH-inga í einstökum greinum:
Í langstökki karla sig...

Continue reading ...
 

Stórmót ÍR

Posted by Vefstjóri on Sunday, January 22, 2012, In : Frjálsar 
Stórmót ÍR fer fram næstu helgi. Endilega skoðið tímaseðil og greinar vel. Skráningargjaldið er 2.500 fyrir hvern keppanda og er hægt að leggja inn á reikning(helst fyrir föstudaginn 27 Jan) 0318-26-006628 Kt:300770-5259. Munið að setja nafnið ykkar sem skýringu og senda kvittun á einthore@gmail.com  Nánari upplýsingar um mótið má sjá hér. Hér er hægt að skoða tímaseðil og riðla.
Continue reading ...
 

MÍ í fjölþrautum

Posted by Vefstjóri on Sunday, January 15, 2012, In : Frjálsar 

Meistaramóti Íslands í fjölþrautum lauk seinni partinn á sunnudag og eftirtaldir einstaklingar urðu Íslandsmeistarar.

Í fimmtarþraut kvenna sigraði Fjóla Signý Hannesdóttir HSK/UMF. Selfoss með 3792 stig eftir góða keppni við Maríu Rún Gunnlaugsdóttur Ármanni sem náði 3651 stigum, árangur þeirra beggja er þeirra besti í fimmtarþraut.

Ásgerður Jana Ágústdóttir UFA sigraði í fimmtarþraut 17 ára og yngri stúlkna, en hún náði 2783 stigum.                   ...


Continue reading ...
 

MÍ í fjölþrautum fyrri dagur-met í 300m karla

Posted by Vefstjóri on Saturday, January 14, 2012, In : Frjálsar 
Meistaramóti ͍slands í fjölþrautum, fyrri degi lokið í Laugardalshöll. Ágætur árangur hefur náðst í þrautargreinunum og eru fyrstu menn í flokkum þessir.
Í karlaflokki er Sölvi Guðmundsson Breiðabliki með 2560 stig. Í flokki 18-19 ára pilta er Ingi Rúnar Kristinsson með örugga forystu og er hann með 2840 stig. í flokki 16-17 ára pilta er Sindri Hrafn Guðmundsson Breiðabliki með 400 stiga forystu og er hann með 2863 stig. Mótið heldur áfram á morgun og þ...

Continue reading ...
 

Mótaskrá

Posted by Vefstjóri on Wednesday, November 23, 2011, In : Frjálsar 
Öll helstu mót ársins 2012 eru komin inn í viðburðadagatalið og hvetjum við alla að skoða það vel. 
Continue reading ...
 

Flottir FH-ingar á Silfurleikum ÍR

Posted by Vefstjóri on Tuesday, November 22, 2011, In : Frjálsar 
Um síðustu helgi fóru fram Silfurleikar ÍR og þangað mættu flottir FH-ingar. Þátttakendur á mótinu öllu voru 559 og áttum við þar 72 keppendur. Börn fædd 2002 og síðar kepptu í þrautabraut og hlutu allir þátttökuverðlaun eftir skemmtilegan og spennandi morgun. Eldri íþróttamenn kepptu í hefðbundnum frjálsum íþróttum og gátu unnið til verðlauna. FH-ingar unnu til fjölda verðlauna og margir bættu sinn besta árangur. Þjálfarar voru mjög ánægðir með...
Continue reading ...
 

Foreldrafundur-Upplýsingar

Posted by Vefstjóri on Tuesday, November 15, 2011, In : Frjálsar 
Gaman var sjá hversu margir foreldrar mættu á fundinn sem haldinn var í kvöld, en rúmlega 50 foreldrar mættu auk þjálfara, stjórnarmanna og annarra velunnarra. Góð stemning var á fundinum og erum við í stjórn frjálsíþróttadeildarinnar hæstánægð með mætingu foreldra. Ýmsar hagnýtar upplýsingar komu fram auk þess sem Lóa Björk og foreldrafélagið kynnti starfsemi, markmið og stefnu félagsins. Óskað var eftir fulltrúum barna fædd "99 og "00 í foreldraféla...
Continue reading ...
 

FH Íslandsmeistarar félagsliða 2011

Posted by Vefstjóri on Thursday, November 10, 2011, In : Frjálsar 
FHingar urðu íslandsmeistarar félagsliða í karlaflokki og kvennaflokki.
Í karlaflokki var sigurinn mjög öruggur en þar fékk FH rúm 20000 stig og liðið í öðru sæti rúm 11000 stig.
Í kvennaflokki var hörð barátta og sigruðu FHkonurnar með 13966 stigum en,HSK/Selfoss 12697 og ÍR 12535.
Í heildarstigakeppninni var sigurinn mjög öruggur. Þá sigruðum við FHingar í 14 greinum af 37 sem er stórgóður árangur og 10 silfurverðlaun unnust einnig. Keppnin fór fram við ...

Continue reading ...