Trausti Stefánsson úr FH setti glæsilegt íslandsmet í 400m hlaupi á Stórmóti ÍR í dag. Trausti hljóp á 48.23 sek, en annar í hlaupinu var Ívar Jasonarson ÍR á 48.53 sek sem einnig er bæting. FH-ingar áttu fjölmarga þátttakendur á mótinu og stóðu allir sig mjög vel og margir í bætingarham eða við sinn besta árangur og megum við vera stolt af okkar fólki. Hér er hægt að skoða öll úrslit af mótinu.
In : Frjálsar